Riesling hvítvín
Riesling er uppáhaldsþrúga vínþjóna um allan heim: arómatísk, hárbeitt í sýru og ótrúlega fjölhæf, frá knastþurru yfir í sætt, alltaf með einkennandi steinefnatón.
Alsace er annað af tveimur stórheimilum þrúgunnar og þaðan kemur úrvalið okkar: Riesling Cuvée Théo frá Domaine Weinbach, úr hinum fræga Clos des Capucins, er á meðal virtustu hvítvína svæðisins og Bestheim Riesling gerir stílinn aðgengilegan hversdags.
Riesling er besti vinur asískrar matargerðar: taílenskt, víetnamskt, sushi og allt sem hefur smá sætu eða sting. Líka frábær með skelfiski og einn og sér. Sjá öll hvítvínin.