Rauðvín í áskrift - Vínklúbburinn Rauðvín er fyrir lífskúnstnera og rauðvínsáhugafólk. Handvalin hágæða rauðvín sem skara framúr og kítla braðlaukana.
Lögð er áhersla á heimsþekkt vín frá fjölbreyttum framleiðendum með ríka sögu um gæði í bland við nýrri framleiðendur sem eru líklegir til að skjótast upp á stjörnuhimininn.
Hægt er að velja um að fá sendar þrjár eða sex flöskur í hverri sendingu. Í rauðvínskassa Vínklúbbsins eru alltaf þrjár rauðvínsflöskur.
Öllum vínkössum fylgir fróðleikur um vínin, uppruna þeirra, framleiðenda, eiginleika og hentuga vínpörun. Sönn upplifun og fræðsla í hverri sendingu.
Vínkassar eru sendir út mánaðarlega á tímabilinu 7. til 12. dag hvers mánaðar. Við skráningu í Vínklúbbinn færðu strax sendan fyrsta kassa mánaðarins.