Pinot Noir rauðvín
Pinot Noir er fágaðasta rauðvínsþrúga heims: létt á lit en djúp í bragði, með rauð ber, jarðartóna og silkimjúk tannín. Hún er jafnframt sú vandræktaðasta, og þess vegna verðlaunar hún þau sem velja vel.
Í úrvalinu okkar mætast gamli og nýi heimurinn: klassísk Búrgundarvín á borð við Gevrey-Chambertin, kaliforníska hliðin með Goldeneye úr Anderson Valley og einnar ekru vín á borð við Calera á Mt. Harlan og fleir aðgengilegri kostir fyrir hversdaginn.
Pinot Noir er oft talið matarvænasta rauðvínið: alifugl, lax, sveppir og villibráð eru sígildir félagar. Sjá vín og mat og öll rauðvínin.