Fin Del Mundo Reserva Pinot Noir (2024)

3.190 kr Venjulegt verð
fjöldi

Pinot Noir frá Patagóníu
Fin Del Mundo Reserva er safaríkt og fágað Pinot Noir frá hinu afskekkta og óspillta vínhéraði Patagóníu í suðurhluta Argentínu. Vínið skartar fallegum rúbínrauðum lit og það býður upp á ákaflega tælandi ilm af ferskum rauðum berjum og fíngerðum kryddum. Bragðið er silkimjúkt og brakandi ferskt og fínleg tannín og lífleg sýra gefa víninu fullkomið jafnvægi og glæsilegt, hreint eftirbragð. Kælingin frá Andesfjöllunum tryggir hér mjög frískandi og fágað Pinot Noir sem leikur við bragðlaukana.

Framleiðandinn
Bodega del Fin del Mundo er staðsett í San Patricio del Chañar í Neuquén í norðanverðri Patagóníu. Víngerðin var stofnuð árið 1999 sem fyrsta og stærsta víngerð svæðisins sem er bæði vindasamt og afskekkt, enda vísar nafnið til þess (“víngerð á hjara veraldar”). Bodega del Fin del Mundo leggur áherslu á að framleiða vín úr Chardonnay og Pinot Noir þrúgum og hefur hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi vín. Með því að sameina hefðbundnar aðferðir og nútíma tækni hefur Bodega del Fin del Mundo skapað sér nafn sem leiðandi framleiðandi á hágæða vínum frá Patagóníu. 

Vínpörun

  • Svínakjöt

  • Alifugl

  • Grillmatur 

  • Kálfakjöt 

  • Pastaréttir

Upplýsingar

  • Land: Argentína

  • Svæði: Patagónía

  • Þrúga: Pinot Noir 

  • Árgerð: 2024

  • Áfengismagn: 13,5%

Viðurkenningar

  • Vinous: 90 stig