Ísraelsk vín
Ísraelsk vín eiga sér þúsunda ára sögu — og eru nú fáanleg í netverslun Vínklúbbsins. Vínin okkar koma frá Clos de Gat, litlu og virtu vínhúsi í Ayalon-dalnum í Júdeuhæðum, þar sem vínin eru gerjuð með villigeri og unnin með lágmarksinngripum.
Vínin frá Clos de Gat
Clos de Gat Chardonnay er fágað og fyllt hvítvín sem stenst fyllilega alþjóðlegan samanburð, og Harel Merlot — kenndur við nálæga hæð — er hreinn og matvænn Merlot í Miðjarðarhafsstíl.
Miðjarðarhafsloftslagið og hæðin yfir sjávarmáli gefa vínunum bæði þroska og ferskleika. Skoðaðu líka hvítvínin, rauðvínin og fínu vínin okkar.