Vínklúbburinn hefur göngu sína

Vínklúbburinn hefur göngu sína

Vínklúbburinn hefur göngu sína

Það er okkur gleðiefni að opna vef Vínklúbbsins og bjóða Íslendingum í fyrsta sinn upp á sérvalin hágæðavín í áskrift. 

Vínklúbburinn var stofnaður af nokkrum vinahjónum sem eiga það sameiginlegt að hafa kynnst sambærilegum vínklúbbum erlendis. Okkur fannst kominn tími til að slík þjónusta yrði í boði á Íslandi fyrir okkur sjálf, vini okkar og alla þá sem njóta þess að upplifa ný og góð vín. Jafnt hversdagsvín á góðu verði eða handvalin og sérinnflutt eðalvín sem ekki hafa áður fengist á Íslandi.

Með því að gerast meðlimur í Vínklúbbnum, færð þú sent ný og fjölbreytt vín í hverjum mánuði. Þú losnar við valkvíðann og færð í staðinn sérvalin vín ásamt fróðleik um uppruna þeirra, eiginleika og pörun við mat.

Skál!