Goðsögnin frá Bolgheri: Sassicaia - Forpöntun*
Sassicaia er vínið sem hóf „Súper-Toskana“ byltinguna og er enn í dag eitt eftirsóttasta rauðvín heims. Árgerðin 2023 er sannkallað meistaraverk sem Monica Larner hjá Wine Advocate veitti hina fullkomnu 100 stiga einkunn og líkti við hina goðsagnakenndu 1985 árgerð.
Vínið er djúprúbínrautt á litinn og einkennist af flókinni og ríkri samsetningu af dökkum berjum og þroskuðum sólberjum, sem fléttast listilega saman við keim af sedrusviði, grafíti og fínlegum kryddum, þar á meðal bleikum pipar, bergamot og blóðappelsínu. Eftir gerjun í stáltönkum er vínið látið þroskast í 24 mánuði á frönskum eikartunnum (30% nýjum), sem skilar sér í silkimjúkri áferð og tignarlegum strúktúr. Uppbyggingin einkennist af fáguðum tannínum og eftirtektarverðum ferskleika. Þetta er sjaldgæf árgerð sem veitir samstundis mikla gleði og opnar sig hratt, en býr jafnframt yfir sýrustigi og styrk til að þroskast glæsilega næstu 10–30 árin.
Framleiðandinn: Tenuta San Guido
Tenuta San Guido er eitt virtasta vínhús Ítalíu og er staðsett í Bolgheri, Toskana. Vínhúsið á heiðurinn af því að hafa hrint af stað „Súper-Toskana“ byltingunni með hinu goðsagnakennda víni Sassicaia. „Súper-Toskani” (Super Tuscan) er hugtak sem varð til yfir hágæða vín frá Toskana sem voru framleidd utan þáverandi reglugerða, oft með því að blanda alþjóðlegum þrúgum við eða í stað hinnar hefðbundnu Sangiovese-þrúgu. Stofnandinn, Mario Incisa della Rocchetta, sótti innblástur til Bordeaux og hóf ræktun á frönskum þrúgum, en vínin frá Tenuta San Guido eru í dag talin til þeirra bestu í heimi og hefur Sassicaia, sem eina vínið á Ítalíu, fengið sína eigin DOC flokkun.
Vínpörun
- Nautakjöt
- Lambakjöt
- Villibráð
- Grillréttir
- Þroskaður Pecorino eða Parmigiano Reggiano ostur
Upplýsingar
- Land: Ítalía
- Svæði: Toskana
- Þrúga: Cabernet Sauvignon (85%), Cabernet Franc (15%)
- Árgerð: 2023
- Áfengismagn: 14%
Viðurkenningar
"Very few vintages of this legendary Tuscan wine deliver the immediate joy, richness and complexity found in the Tenuta San Guide 2023 Bolgheri Sassicaia. Like the legednary 1985, 2023 was a difficult and stressful vintage shaped by a cold winter, yet it stands as proof that great pressure can indeed give birth to diamonds." - Robert Parker
ATHUGIÐ: Aðeins er hægt að forpanta Sassicaia til að tryggja sér eintak. Vínið kemur til afhendingar frá framleiðanda í september 2026