Quinta do Vallado Douro Superior (2020)

4.890 kr Venjulegt verð
fjöldi

Kraftmikið portúgalskt rauðvín
Þetta rauðvín frá Douro-dalnum er ríkulegt og fágað og sýnir sérlega vel hversu gífurleg gæði Portúgal hefur upp á að bjóða. Vínið hefur djúpan lit og ákafan ilm sem þróast mikið í glasinu. Þar mætast kirsuber, þurrkaðar fíkjur, plómur og fjólur, ásamt flóknum keim af leðri, jörð, svörtum pipar og rósmarín. Bragðið er fyllt og kraftmikið með góðri sýru, mjúkum tannínum og löngu, glæsilegu eftirbragði. Þrúgurnar eru handtíndar af lífrænt vottuðum vínekrum og vínið fær að þroskast í 16 mánuði á frönskum eikartunnum sem gefur því einstaka mýkt.

Framleiðandinn
Quinta do Vallado var stofnað árið 1716 og er einn elsti og frægasti vínbúgarðurinn í Douro-dalnum. Búgarðurinn tilheyrði áður hinni goðsagnakenndu Dona Antónia Adelaide Ferreira og er enn í eigu afkomenda hennar. Fram til ársins 1987 snerist framleiðslan aðallega um portvín undir merkjum Ferreira. Í dag framleiðir vínhúsið bæði glæsileg portvín og þurr borðvín, en Vallado er einn af stofnendum „Douro Boys“ hópsins sem leiddi gæðabyltingu rauðvína í Portúgal.

Vínpörun

  • Nautakjöt

  • Villibráð

  • Pottréttir

  • Lambakjöt

Upplýsingar

  • Land: Portúgal

  • Svæði: Douro

  • Þrúga: Touriga Nacional, Touriga Franca, Sousão

  • Árgerð: 2020

  • Áfengismagn: 14,5%

  • Vínið er lífrænt og bíódýnamískt

Viðurkenningar

  • Robert Parker: 92 stig