Pinot Nero IGT Veneto (2019)

3.000 kr Venjulegt verð
Fjöldi

Fágað og glæsilegt Pinot Nero með silkimjúkri áferð

Við höldum til norðurhluta Ítalíu, nánar tiltekið til Treviso í Veneto-héraði, þar sem víngerðin 47 Anno Domini ræktar sínar þrúgur í frjósömum og steinefnaríkum jarðvegi. Þetta Pinot Nero frá árganginum 2019 er fallega rúbínrautt á litinn og býður upp á ákafan og fágaðan ilm. Í nefinu mætir okkur tælandi ilmur af þroskuðum skógarberjum, kirsuberjum og jarðarberjum, sem blandast listilega við mjúka tóna af vanillu og fíngerðum kryddum eftir tíu mánaða þroskun í eikartunnum.

Á bragðið er vínið miðlungsfyllt, fágað og einstaklega vel í jafnvægi. Það einkennist af safaríkum rauðum ávöxtum og ferskri sýru sem heldur víninu lifandi og brakandi fersku. Tannínin eru silkimjúk og fágað eftirbragðið er viðvarandi með hlýlegum tóni af ristuðum eikartónum og kryddi. Þetta er vín sem ber með sér mikinn persónuleika og endurspeglar einstök vaxtarskilyrði svæðisins.

Framleiðandinn

47 Anno Domini leggur í framleiðslu sinni áherslu á að blanda saman aldagömlum ítölskum hefðum í víngerð við nýsköpun í framleiðslu ásamt því að huga að heildarupplifun og fallegri hönnun.

Vínviðurinn hjá 47 Anno Domini nærist af frjósömum, leirkenndum jarðvegi, ríkum af steinefnasöltum og öll vínin búa yfir miklum persónuleika. Víngarðurinn hefur rætur sínar að rekja margar kynslóðir aftur í tíman, en í dag er framleiðslan nútímaleg og lífrænt vottuð.

Vínpörun

  • Rautt kjöt
  • Grillmatur
  • Villibráð
  • Ostar

Upplýsingar

  • Land: Ítalía
  • Svæði: Treviso
  • Þrúga: Pinot Nero
  • Árgerð: 2019
  • Áfengismagn: 13,0%