Pegaso Zeta Cebreros (2022)

4.790 kr Venjulegt verð
fjöldi

Tært og fágað Garnache frá Spáni
Pegaso Zeta er tært og lifandi rauðvín sem sýnir fínustu hliðar Garnacha-þrúgunnar. Vínið á rætur sínar að rekja til Cebreros í Gredos-fjöllunum, þar sem þrúgurnar eru handtíndar af gömlum vínvið sem vex í steinefnaríkum granítjarðvegi í fjallshlíðunum. Liturinn er ljósrúbínrauður og ilmurinn einkennist af ferskum villtum jarðarberjum, heiðajurtum og svalandi steinefnakeim. Bragðið er silkimjúkt og léttara en mörg önnur spænsk rauðvín; enda er það fágun og hreinleiki sem ræður ríkjum frekar en þungi og eik. Fersk sýra og fíngerð tannín lyfta víninu upp og leiða það í átt að löngu og glæsilegu eftirbragði.

Framleiðandinn
Telmo Rodriguez er sönn goðsögn í spænskri víngerð og hefur hlotið titilinn vínframleiðandi ársins hjá virtum miðlum á borð við Tim Atkin og Guía Peñín. Telmo nam vínfræði í Bordeaux og aflaði sér dýrmætrar reynslu hjá mörgum af virtustu vínhúsum heims, þar á meðal Pétrus, Guigal, Cos d’Estournel og Dominus. Hann er þekktur fyrir að endurheimta gleymdar og sögulegar vínekrur víðsvegar um Spán, þar sem hann leggur ríka áherslu á staðbundnar þrúgur og lífræna ræktun. Telmo hefur ítrekað hlotið 100 stiga einkunn hjá bæði Robert Parker og James Suckling, auk þess sem hann stýrir framleiðslunni á hinu sögufræga fjölskyldubýli sínu, Remelluri í Rioja.

Vínpörun

  • Grillmatur

  • Lambakjöt

  • Svínakjöt

  • Alifugl

  • Ostar

Upplýsingar

  • Land: Spánn

  • Svæði: Castilla y Leon

  • Þrúga: Garnacha

  • Áfengismagn: 14.5 %

  • Árgerð: 2022

Viðurkenningar

  • Robert Parker: 92 stig