Oddbird Blanc de Blancs (óáfengt freyðivín, lífrænt)

2.990 kr
Örfá eintök eftir - 3 eftir á lager

Glæsilegt lífrænt óáfengt freyðivín úr Chardonnay

Blanc de Blancs frá Oddbird er fágaður og hátíðlegur valkostur fyrir tilefnin sem skipta máli. Vínið er gert úr 100% Chardonnay á hefðbundinn hátt, lífrænt vottað, og alkóhólið fjarlægt að lokum. Það er fölgult með fínum, þrálátum bólum, ilmur af grænu epli, sítrus og léttum brauðkeim, og bragðið þurrt, ferskt og elegant.

Framleiðandinn

Oddbird er sænskur frumkvöðull í óáfengu gæðavíni, stofnað af Moa Gürbüzer árið 2013, með það að markmiði að búa til alvöru vín án áfengis. Vínin eru framleidd á hefðbundinn hátt úr lífrænt ræktuðum þrúgum frá Suður-Evrópu, með lágmarks íhlutun, og alkóhólið svo fjarlægt. Allt úrvalið er lífrænt vottað.

Vínpörun

  • Fordrykkur
  • Hátíðir
  • Skelfiskur
  • Fiskur
  • Léttir réttir

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaChardonnay
LandSvíþjóð
Áfengismagn0%