Kraljevski Pošip

4.964 kr
Tegund

Króatísk perla úr Pošip

Kraljevski Pošip er spennandi hvítvín frá Dalmatíu, strandhéraði Króatíu við Adríahaf. Liturinn er fallega strágulur með gylltum gljáa. Ilmurinn er suðrænn og seiðandi: þroskuð apríkósa, gul epli og sítrusbörkur mæta möndlum, Miðjarðarhafsjurtum og greinilegri sjávarseltu sem minnir á uppruna vínsins við sólbakaða strönd. Í munni er vínið meðalfyllt með ávalri, nánast olíukenndri áferð, en fersk sýra og steinefnakennt bit halda því spennandi allt til enda. Eftirbragðið er langt með saltri, þurri lokun. Pošip er þrúga sem fáir þekkja en flestir heillast af og þetta vín er kjörin leið til að kynnast einum best geymda leyndarmáli Adríahafsins.

Framleiðandinn

Kraljevski vinogradi rækta vín sín í hlíðunum ofan við Petrčane við Adríahafið, rétt norðan við Zadar. Sagan á bak við nafnið „konunglegu víngarðarnir“ nær aftur til 1066, þegar Petar Krešimir IV Króatíukonungur ánafnaði klaustri í Zadar víngarða á þessum sömu slóðum. Hugmyndafræði hússins er einföld: að leyfa hreinum þrúguilmi og steinefnum jarðvegsins að njóta sín án íburðar. Sú nálgun hentar Pošip einstaklega vel og hefur skilað víngerðinni verðlaunum langt út fyrir heimahagana.

Vínpörun

  • Fiskur
  • Skelfiskur
  • Sushi
  • Salöt
  • Fordrykkur

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaPošip
HéraðDalmatía
LandKróatía
Áfengismagn13%