Fimm þrúgur, eitt tákn
Il Segno er kraftmikið og dularfullt rauðvín frá Suður-Ítalíu úr blöndu af fimm þrúgum: Primitivo, Aglianico, Nero d'Avola, Nerello Mascalese og Sangiovese. Liturinn er djúpur og dökkur og ilmurinn ríkulegur: þroskuð dökk ber, kirsuberjasulta, súkkulaði, lakkrís og hlý suðræn krydd. Bragðið er þétt og flauelsmjúkt með mikilli fyllingu, mjúkum tannínum og löngu, hlýju eftirbragði. Gyllti keramikmiðinn á svörtu flöskunni gerir vínið jafn eftirminnilegt á borðinu og í glasinu. Stórt og örlátt vín fyrir dimm vetrarkvöld og góðan félagsskap.
Framleiðandinn
Il Segno („táknið“) kemur frá Cinque Segni, sem sérhæfir sig í að tvinna saman arfleifð suðurhluta Ítalíu: fimm þrúgur, eitt vín. Hugmyndin er að fanga fjölbreytni Suður-Ítalíu í einni flösku og útkoman er ríkulegt vín með sterkan karakter.
Vínpörun
- Nautakjöt
- Villibráð
- Grillmatur
- Pottréttir
- Ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Primitivo, Aglianico, Nero d'Avola, Nerello Mascalese, Sangiovese |
|---|
| Hérað | Suður-Ítalía |
|---|
| Land | Ítalía |
|---|
| Áfengismagn | 14% |
|---|