Kraftmikið, kryddað og ferskt hvítvín
Frísklegt og kryddað hvítvín frá Burgenland í Austurríki. Vínið er ljóst og gyllt á litinn með heillandi ilm af villiblómum, ferskum plómum og þægilegum votti af hunangi. Á bragðið er það safaríkt og ferskt með keim af þroskuðum apríkósum, gulum eplum, grænum perum og litkaberjum (lychee). Örlítil eik gefur víninu kryddaðan blæ og fyllingu sem er í fullkomnu jafnvægi við líflega sýru. Þetta er vandað vín sem sýnir hvers vegna Kracher er einn fremsti framleiðandi Austurríkis.
Framleiðandinn
Weinlaubenhof Kracher er staðsett í Illmitz við Neusiedlersee í Burgenland í Austurríki. Víngerðun öðlaðist heimsfrægð undir stjórn Alois Kracher, en sonur hans Gerhard heldur nú merkinu á lofti af miklum metnaði. Kracher er án efa þekktasta vínhús Austurríkis á alþjóðavísu og hefur hlotið ótal verðlauna fyrir gæði. Þótt áherslan sé aðallega á eftirréttavín, framleiðir víngerðin einnig framúrskarandi þurr vín sem njóta góðs af einstökum skilyrðum svæðisins.
Vínpörun
-
Fordrykkur
-
Fiskur
-
Skelfiskur
-
Ostar
-
Ljóst kjöt
Upplýsingar
-
Land: Austurríki
-
Svæði: Burgenland
-
Þrúga: Grüner Veltliner
-
Áfengismagn: 12,5%
-
Árgerð: 2023
Viðurkenningar