Gewürztraminer Bürckel-Jung (2020)

4.790 kr Venjulegt verð
fjöldi

Framandi Alsace hvítvín
Gewürztraminer er ein af „eðalþrúgum“ Alsace og er þekkt fyrir að vera einhver ilmríkasta þrúga heims. Hún gefur af sér vín með mikla fyllingu og lága sýru, þar sem framandi ávextir og blómatónar ráða ríkjum. Gewürztraminer parast ekki eins og hefðbundið hvítvín; vegna ríkulegs karakters og sætuvotts parast það best við eftirrétti, sterka osta eða kryddaða asíska rétti sem kalla á kröftugt mótvægi (t.d. indverska eða tælenska matargerð). Þetta tiltekna vín hefur djúpan gulan lit með gylltum bjarma. Ilmurinn er kröftugur og opnast með keim af litchi-aldin, ástaraldin og mangó, sem blandast einstaklega vel við rósailm og kryddaða undirtóna. Þetta er hreint og lifandi vín sem einkennist af mikilli orku, metnaði og handverki, en appelsínuguli miðinn á flöskunni skartar hálfmána sem táknar að unnið sé eftir tungldagatali við ræktunina.

Framleiðandinn
Bürckel-Jung hefur framleitt vín síðan 1802 (8. kynslóð). Mikil áhersla er lögð á náttúruna og í dag er öll framleiðsla bæði lífrænt og bíódínamískt vottuð. Bürckel-Jung víngerðin býður ferðamönnum upp á svokallað "Les plantes Sauvages et la Vignes" sem er hluti af vistvænni ferðamennsku (ecoturism) á Grand Est svæðinu. Líkt og fjölskyldan sjálf, þá hafa vínin frá Bürckel-Jung sterkan persónuleika og einstakan karakter. Þessi karakter endurspeglar vinnusemi og alúð margra kynslóða við að framleiða hágæða vín með lágmarks inngripi.

Vínpörun

  • Kryddaðir asískir réttir

  • Ostar

  • Eftirréttir

  • Fois gras

Upplýsingar

  • Land: Frakkland

  • Svæði: Alsace

  • Þrúga: Gewürtztraminer

  • Áfengismagn: 13%

  • Árgerð: 2020

  • Vínið er bíódínamískt og vegan