Domaine Vignoble Cogné
Sauvignon Blanc frá Loire
Þetta brakandi ferska og skemmtilega hvítvín er frábært dæmi um það hvers vegna Loire-dalurinn er talinn háborg Sauvignon Blanc þrúgunnar. Vínið er ljósgult á litinn og býður upp á tælandi ilm af ylliblómum, kryddjurtum og áberandi ferskum sítrus, með keim af grænum eplum og límónu. Vínið er ferskt en milt og býður upp á dásamlega sýru og þétt ávaxtabragð. Það er tilvalið að drekka eitt og sér eða með léttum réttum á borð við fisk.
Framleiðandinn
Vignoble Cogné er lítill gæðaframleiðandi sem er staðsettur í Loire dalnum í Frakklandi. Víngerðin hefur verið fjölskyldueign í þrjár kynslóðir og þeirra helsta áhersla er að framleiða hágæða vín á viðráðanlegu verði. Auk Sauvignon Blanc, framleiðir Domaine Vignoble Cogné einnig hvítvín úr öðrum þrúgutegundum svo sem Chardonnay, Gamay og Gewurztraminer ásamt blönduðu rauðvíni.
Vínpörun
-
Fordrykkur
-
Fiskur
-
Skelfiskur
-
Sumarréttir
-
Grænmetisréttir
Upplýsingar
-
Land: Frakkland
-
Svæði: Loire
-
Þrúga: Sauvignon Blanc
-
Árgerð: 2023
-
Áfengismagn: 12,5%