Háfjalla rauðvín
Kraftmikið Malbec vín frá hinu fræga Mendoza vínhéraði í Argentínu sem býður upp á kjöraðstæður fyrir ræktun á Malbec þrúgunni. Vínið er látið þroskast í 14 mánuði í frönskum eikartunnum, þar af eru 70% af tunnunum úr nýrri eik. Vínið er dökkt á litinn, nánast fjólublátt meðfram brúninni og í nefi eru áberandi þroskuð ber, sólber, bláber, keimur af kryddi, mokka og dökku súkkulaði. Vínið hefur þétta fyllingu sem endar á mjúkum berjuðum nótum og fínu tanníni.
Framleiðandinn
Heimsklassa framleiðandi með sterkar rætur í Catena! Samkvæmt Decanter, er El Enemigo meðal 10 bestu vínframleiðenda í Suður-Ameríku og er þekktur fyrir heimsklassa Cabernet Franc og Malbec. El Enemigo Wines er staðsett í Piedemonte al Sur við rætur Andesfjallanna í Lújan de Cuyo í Mendoza vínhéraðinu. Hér framleiðir El Enemigo vín á heimsmælikvarða úr þrúgum frá nokkrum af hæst liggjandi vínekrum heims.
Vínpörun
- Nautakjöt
- Alifugl
- Villibráð
- Grillmatur
- Svínakjöt
Upplýsingar
- Land: Argentína
- Svæði: Mendoza
- Þrúga: Malbec
- Árgerð: 2019
- Áfengismagn: 13,5%