Duckhorn Three Palms Merlot (2021)

12.640 kr
Tegund

Rauðvín frá einum þekktasta Merlot-víngarði Bandaríkjanna

Árgangur 2021 af Three Palms Merlot er djúpt rúbínrautt með nær ógegnsærri kjarnadýpt. Ilmurinn hefst á dökkum kirsuberjum og plómum, en opnast svo með kakói, sedrusviði, þurrkuðum jurtum og hlýju bökunarkryddi. Bragðið er stórt og hlaðið en um leið einstaklega fágað: mikil fylling, þétt en slípuð tannín og djúpur, lagskiptur ávöxtur sem heldur áfram að gefa langt fram í eftirbragðið. Þetta er Merlot á heimsmælikvarða, vín sem sameinar kraft og glæsileika á þann hátt sem aðeins bestu víngarðar geta. Umhelling í karöflu opnar vínið fallega í dag, en þolinmóðir verða ríkulega verðlaunaðir; vínið á inni langan þroska í kjallara. Hátíðarvín í orðsins fyllstu merkingu.

Framleiðandinn

Three Palms er án efa frægasti Merlot-víngarður Bandaríkjanna og Duckhorn hefur unnið vín úr honum allt frá árinu 1978. Samstarfið hefur getið af sér mörg af rómuðustu Merlot-vínum Nýja heimsins og náði hápunkti þegar 2014 árgangurinn var valinn vín ársins hjá Wine Spectator árið 2017 sem var einstakur heiður fyrir Merlot. Fyrir Duckhorn er Three Palms flaggskipið sjálft, vínið sem skilgreinir húsið öðrum fremur.

Vínpörun

  • Nautakjöt
  • Lambakjöt
  • Kálfakjöt
  • Villibráð
  • Ostar

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaMerlot
HéraðNapa Valley
LandBandaríkin
Árgerð2021
Áfengismagn14,5%