Hátíðlegur Pinot Gris frá Alsace
Cuvée Sainte-Catherine skartar djúpum gullnum lit sem gefur ríkidæmi vínsins strax til kynna. Ilmurinn er dáleiðandi: þroskuð pera, apríkósa, hunang, reykur og ljúft krydd fléttast saman í margslungna heild. Í munni er vínið hnausþétt og silkimjúkt, með mikilli fyllingu og olíukenndri áferð sem einkennir bestu Pinot Gris-vín Alsace, en fersk sýra og steinefnakennd festa halda öllu í fullkomnu jafnvægi. Eftirbragðið er langt og ljómandi, með hunangs- og kryddtónum sem óma lengi. Þetta er hvítvín af hátíðlegri gerðinni - það þolir vel umhellingu og á inni margra ára þroska í kjallara. Stórbrotinn Pinot Gris sem sýnir hvers vegna Alsace er á meðal helgustu véa hvítvínsins.
Framleiðandinn
Domaine Weinbach er í hópi allra virtustu vínhúsa Alsace, rómað fyrir vín sem sameina þéttleika og svífandi léttleika. Cuvée Sainte-Catherine er á meðal þekktustu cuvée hússins og hefur um árabil verið samnefnari fyrir Pinot Gris eins og hann gerist bestur. Vinnubrögðin einkennast af alúð og nákvæmni í víngarði jafnt sem kjallara, og hvert vín ber skýran svip af upprunanum. Nafn Weinbach eitt og sér er gæðastimpill í augum vínunnenda um allan heim.
Vínpörun
- Alifugl
- Fiskur
- Asískir réttir
- Svínakjöt
- Ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Pinot Gris |
|---|
| Hérað | Alsace |
|---|
| Land | Frakkland |
|---|
| Áfengismagn | 14% |
|---|