Sumarlegt rósavín frá Kaliforníu
Decoy California Rosé skartar fölbleikum, laxalituðum lit sem lofar góðu um ferskleikann sem fylgir. Ilmurinn er þokkafullur og sumarlegur: villijarðarber, vatnsmelóna, rauð ber og sítrusbörkur, með fíngerðum blómatónum í undiröldunni. Vínið er unnið úr Pinot Noir, þrúgu sem gefur rósavínum sérstaka fágun, og það finnst í glasinu - bragðið er þurrt, silkikennt og fjaðurmagnað, með frískandi sýru og hreinu, svalandi eftirbragði. Hér er ekkert sykurhlaðið sumargutl á ferð heldur alvöru matarrósavín í suður-frönskum anda, gert af kalifornískri natni. Fullkomið eitt og sér á sólríkum eftirmiðdegi, en nýtur sín ekki síður með léttum réttum af grillinu eða fersku salati.
Framleiðandinn
Decoy er aðgengilegri vínlína Duckhorn fjölskyldunnar í Kaliforníu, hugsuð til að færa handbragð og gæðakröfur hússins í vín sem má opna hvenær sem tilefni gefst eða án nokkurs tilefnis. Línan sækir þrúgur víða um Kaliforníu og leggur áherslu á hreinan ávöxt, jafnvægi og drykkjargleði. Rósavínið er gott dæmi um þessa hugmyndafræði: vandað, þurrt og fágað rósavín sem stendur langt framar því sem verðflokkurinn gefur til kynna.
Vínpörun
- Fordrykkur
- Salöt
- Fiskur
- Skelfiskur
- Grillmatur
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Pinot Noir |
|---|
| Hérað | Kalifornía |
|---|
| Land | Bandaríkin |
|---|
| Áfengismagn | 13% |
|---|