Grand Cru frá Saint-Émilion
Château Teyssier er djúprautt, næstum svarrautt vín úr hjarta Saint-Émilion. Ilmurinn er þéttur og lokkandi: dökk plóma, svört kirsuber og brómber, kryddað með sedrusviði, lakkrís og mjúkum súkkulaðitónum. Merlot þrúgan leiðir blönduna og gefur víninu safaríka fyllingu og flauelsmjúka áferð, á meðan Cabernet Franc leggur til ferskleika, fjólublóm og fínlega byggingu. Í munni er vínið fyllt og hlýtt, með þroskuðum tannínum, jarðbundinni dýpt og löngu eftirbragði sem ilmar af dökkum ávexti og kryddi. Þetta er Bordeaux-vín eins og þau gerast best á hægribakkanum. Höfðinglegt en um leið gestrisið, og sannkallað tilhlökkunarefni með góðri steik eða villibráð.
Framleiðandinn
Château Teyssier er heimahús víngerðarmannsins Jonathan Maltus í Saint-Émilion, einu virtasta víngerðarþorpi Bordeaux. Á hægribakka Dordogne-árinnar ræður Merlot ríkjum og gefur mýkri og aðgengilegri vín en vinstribakkinn, með Cabernet Franc sem tryggan meðreiðarsvein. Grand Cru merkingin á sér langa sögu í héraðinu og vísar til metnaðarfyllri víngerðar. Teyssier fangar þennan anda: rausnarlegt Saint-Émilion sem ber uppruna sínum fagurt vitni.
Vínpörun
- Nautakjöt
- Lambakjöt
- Villibráð
- Pottréttir
- Ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Merlot, Cabernet Franc |
|---|
| Hérað | Saint-Émilion |
|---|
| Land | Frakkland |
|---|
| Árgerð | 2015 |
|---|
| Áfengismagn | 14% |
|---|