Tært og frískandi Chablis
Chablis frá Bouchard Aîné et Fils er tignarlegt hvítvín sem sýnir hvers vegna þetta svæði í Búrgúndí er heimsþekkt fyrir Chardonnay-vín sín. Vínið er ljósgyllt á litinn með grænum bjarma og býður upp á brakandi ferskan ilm af sítrus, grænum eplum og hvítum blómum. Hinn einkennandi steinefnakeimur gefur víninu einstakan karakter en hann kemur frá jarðveginum sem er ríkur af fornum ostruskeljum. Eftir gerjun er vínið látið hvíla á sínu náttúrulega botnfalli í fimm til sjö mánuði (sur lie), sem gefur því mýkri áferð og flóknara bragð. Bragðið er þurrt og fágað með líflegri sýru, þéttri fyllingu og löngu, tæru eftirbragði þar sem selta og ferskleiki mætast í fullkomnu jafnvægi.
Framleiðandinn
Bouchard Aîné et Fils er eitt af sögufrægustu vínhúsum Búrgúndar, stofnað árið 1750, og hefur í yfir tvær aldir lagt metnað í framleiðslu gæðavína. Þeir leggja áherslu á nákvæmni í víngerðinni og virðingu fyrir hinu einstaka „terroir“ svæðisins. Með því að blanda saman aldagömlum hefðum og nútíma tækni tryggja þeir að hvert vín endurspegli hreinleika þrúgunnar og sérkenni hvers árgangs. Vínhúsið nýtur mikillar virðingar fyrir stöðugleika og glæsileika, og Chablis-vínin frá þeim eru sönn fyrirmynd héraðsins.
Vínpörun
- Fordrykkur
- Alifugl
- Fiskur
- Skelfiskur
- Ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Chardonnay |
|---|
| Hérað | Bourgogne |
|---|
| Land | Frakkland |
|---|
| Árgerð | 2024 |
|---|
| Áfengismagn | 13% |
|---|