Frískandi Sauvignon Blanc
Reserva Sauvignon Blanc er úr þrúgum sem eru fengnar úr svölu loftslagi í vesturjaðri Casablanca-dalsins. Þrúgurnar eru gerjaðar og þroskaðar í ryðfríum stál tunnum ná að fanga kjarna landslagsins og gefa víninu lifandi sýru og skarpan ávaxtakeim. Vöndurinn er kraftmikill og stríðir skilningarvitunum með sítruskenndum töfrum sínum. Í bragði má finna keim af nektarínum og hvítum ferskjum sem bætir við líflegt sýrustigið. Frábær félagi við hvaða tilefni sem er.
Framleiðandinn
Casas del Bosque er sannkallaður “cold-climate” gimsteinn Casablanca-dalsins og einn af bestu framleiðendum svæðisins. “Cold-climate” skilgreiningin vísar til þess að loftslagið í dalnum er kalt miðað við hefðbundna vínrækt, sem hentar vel fyrir ákveðnar þrúgur. Þar á meðal Chardonnay, Sauvignon Blanc og Pinot Noir. Staðsetning Casablanca dalsins á milli Andesfjallana og Kyrrahafsins skapar kalt loftslag. Víngerðin var stofnuð árið 1993 og Viña Casas del Bosque er 100% í eigu Cuneo fjölskyldunnar, sem er upprunalega frá Ítalíu. Öll vínin sem Casa de Bosque framleiðir eru sjálfbærnivottuð og framleidd án eiturefna á vínekrunum.
Vínpörun
- Fordrykkur
- Fiskur
- Skelfiskur
- Alifugl
- Grænmetisréttir
Upplýsingar
- Land: Chile
- Svæði: Casablanca
- Þrúga: Sauvignon Blanc
- Árgerð: 2022
- Áfengismagn: 14,0%
Viðurkenningar
- James Suckling: 90 Point
- Le Cav: 90 Point