Fágað Pinot Noir frá Suður Ameríku
Postales Pinot Noir 2023 frá Bodega del Fin del Mundo er einstaklega fágað rauðvín frá hinu afskekkta og óspillta vínhéraði Patagonia í Argentínu. Vínið er ljósrautt með fallegum rúbínrauðum tónum. Ilmurinn er tælandi og einkennist af ferskum rauðum berjum, ásamt fíngerðum keim af blómum og jarðvegi. Bragðið er silkimjúkt, með meðal fyllingu, fínleg tannín og góðu jafnvægi milli sýru og ávaxta. Kælingin frá Andesfjöllunum og Atlantshafinu tryggir frískandi og fágað Pinot Noir í hæsta gæðaflokki.
Framleiðandinn
Bodega del Fin del Mundo er staðsett í San Patricio del Chañar í Neuquén í norðanverðri Patagóníu. Víngerðin var stofnuð árið 1999 sem fyrsta og stærsta víngerð svæðisins sem er bæði vindasamt og afskekkt, enda vísar nafnið til þess (“víngerð á hjara veraldar”). Bodega del Fin del Mundo leggur áherslu á að framleiða vín úr Chardonnay og Pinot Noir þrúgum og hefur hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi vín. Með því að sameina hefðbundnar aðferðir og nútíma tækni hefur Bodega del Fin del Mundo skapað sér nafn sem leiðandi framleiðandi á hágæða vínum frá Patagóníu.
Vínpörun
- Alifugl
- Pastaréttir
- Mjúkir ostar
- Villibráð
Upplýsingar
- Land: Argentína
- Þrúga: Pinot Noir
- Árgerð: 2023
- Áfengismagn: 14%