Hvað er óáfengt vín?
Óáfengt vín er venjulegt vín sem hefur verið búið til á hefðbundinn hátt – gerjað úr vínberjum – en alkóhólið er svo fjarlægt að lokum. Útkoman er drykkur með bragði og karakter víns en lítið sem ekkert áfengi (yfirleitt 0,0% eða undir 0,5%).
Hvernig er óáfengt vín búið til?
Fyrst er vínið framleitt eins og venjulega. Síðan er alkóhólið fjarlægt með mildri tækni – oftast lofttæmis-eimingu (vacuum distillation) við lágt hitastig, sem fjarlægir áfengið en varðveitir viðkvæm ilm- og bragðefni. Þess vegna skiptir gæði grunnvínsins öllu máli – og þess vegna veljum við framleiðendur eins og Leitz og Oddbird.
Er óáfengt vín alveg án áfengis?
Það fer eftir víninu. Sum eru 0,0% (t.d. Leitz Eins Zwei Zero), önnur innihalda örlítið, undir 0,5% – svipað og í þroskuðum ávexti eða safa. Á hverri vöru kemur áfengismagnið skýrt fram.
Hvernig bragðast óáfengt vín?
Gott óáfengt vín er ferskt, þurrt og bragðmikið – ekki sætt gos. Óáfengt freyðivín og hvítvín koma oft best út, en framfarir í óáfengu rauðvíni og rósavíni hafa verið miklar síðustu ár.
Með hverju passar óáfengt vín?
Eins og venjulegt vín: óáfengt hvítvín og freyðivín með fiski, skelfiski og léttum réttum, óáfengt rauðvín með kjöti og pasta. Sjá nánar í pörunarhandbókinni.
Algengar spurningar
Er hægt að keyra eftir óáfengt vín?
Vín merkt 0,0% innihalda ekkert áfengi. Vín undir 0,5% innihalda hverfandi magn – en kynntu þér alltaf merkingar.
Er óáfengt vín hollara?
Það inniheldur færri hitaeiningar og ekkert (eða nær ekkert) áfengi, en getur innihaldið sykur – mismunandi eftir víni.
Skoðaðu óáfengu vínin hjá Vínklúbbnum – sérvalin og sent heim að dyrum.