Safaríkt og ferskt náttúruvín
Vínið er unnið úr handtíndum Grenache Noir þrúgum af 25 ára gömlum vínviði á sólbökuðum hæðum í Languedoc. Það er fallega rautt á litinn og opnast með ilmi af þroskuðum jarðarberjum, kirsuberjum og kandíseruðum appelsínubörk, ásamt fínlegum keim af blómum. Þrúgurnar eru afstilkaðar og milt pressaðar, gerjunin fer fram með villigerlum og án viðbætts súlfíts, og safinn liggur með hýðinu í tíu daga. Vínið er síðan geymt kalt í stáltönkum, sem varðveitir ferskleikann án áhrifa frá eik. Bragðið er safaríkt og líflegt, með sætu kryddi, berjamauki, mjúkum tannínum og hressandi trönuberjakeim í löngu eftirbragði.
Framleiðandinn
Artisans Partisans er samstarf fjögurra lífrænt ræktaðra vínbúa í Languedoc í Suður-Frakklandi, á svæðinu milli Corbières og Limoux. Verkefnið, sem Pierre Bories leiðir, er sprottið frá Château Ollieux Romanis í hjarta Cru Boutenac, þar sem Bories-fjölskyldan hefur ræktað vín í margar kynslóðir. Vínin eru alfarið lífræn, gerjuð með villigerlum og unnin með lágmarks íhlutun. Víngerðin byggir á samlífi við staðhætti svæðisins – svokallað terroir – þar sem virðing fyrir náttúrunni, líffræðilegum fjölbreytileika og sjálfbærri ræktun er höfð að leiðarljósi. Vínbúin eru ólík að eðli, allt frá sólbökuðum hæðum við Miðjarðarhafið upp í 350 metra hæð í fyrstu hlíðum Pýreneafjalla.
Vínpörun
-
Lambakjöt
-
Grillmatur
-
Nautakjöt
-
Pizza
-
Ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Grenache Noir |
|---|
| Hérað | Corbiéres, Languedoc |
|---|
| Land | Frakkland |
|---|
| Árgerð | 2022 |
|---|
| Áfengismagn | 13,5% |
|---|