The Wolftrap Red Boekenhoutskloof 2022

2.900 kr Venjulegt verð 3.300 kr
Tegund
Örfá eintök eftir - 4 eftir á lager

Kraftmikið og ríkt rauðvín

Þetta ljúffenga vín frá Boekenhoutskloof í Suður-Afríku er framleitt úr blöndu af Syrah, Mourvèdre og Viognier þrúgum, en sú samsetning nýtur mikilla vinsælda í vínum frá Rhône-dalnum í Frakklandi. Ilmurinn er ákafur og einkennist af brómberjum, svörtum kirsuberjum og plómu, með keim af reyk, leðri og kryddi - þar á meðal svörtum pipar, negul og fíngerðum lakkrís.
Vínið hefur verið létt þroskað á eikartunnum sem gefur því mjúka áferð og góða fyllingu með ljúfu og löngu eftirbragði.

Framleiðandinn

Boekenhoutskloof er staðsett í Franschhoek-dalnum í nágrenni við Cape Town í Suður-Afríku. Franschhoek er eitt af þekktustu víngerðarsvæðum landsins. Hér var Boekenhoutskloof stofnað árið 1776 og er í dag einn af leiðandi vínframleiðendum Suður-Afríku. Víngerðarmaðurinn Marc Kent stýrir framleiðslunni með lágmarks inngripi og sjálfbærum aðferðum, enda er Boekenhoutskloof þekkt fyrir gæði, sjálfbærni og nýsköpun. Víngerðin “The Wolftrap” sækir innblástur frá ævintýrum frumbyggjanna og býður upp á djarfar og kröftugar vínblöndur sem heiðra sögu og arfleifð svæðisins.

Vínpörun

  • Svínakjöt
  • Kálfakjöt
  • Lambakjöt
  • Nautakjöt
  • Pottréttir

Viðurkenningar

  • International Wine and Spirit Competition: 95 stig

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaSyrah (65%), Mourvédre (32%), Viagnier (3%)
HéraðFranschhoek
LandSuður Afríka
Árgerð2022
Áfengismagn14%