Syrah-blanda að hætti Rhône
Field Atlas er lifandi og kryddað rauðvín frá Simonsberg-Paarl, Rhône-blanda þar sem Syrah fer fremst í flokki (89%) með Mourvèdre, Grenache og örlitlu af Viognier í för. Liturinn er djúpfjólublár og ilmurinn heillandi: dökk ber, svartur pipar, fjólur og villtar kryddjurtir. Hluti þrúgnanna er gerjaður með heilum klösum sem gefur víninu ferskan, safaríkan karakter, og þroskun í steinsteypu og franskri eik skilar fágaðri áferð með mjúkum tannínum. Bragðið er meðalfyllt, kryddað og einstaklega matvænt - suður-afrísk túlkun á norðurhluta Rhône sem kemur skemmtilega á óvart.
Framleiðandinn
Noble Hill er fjölskyldubúgarður við rætur Simonsberg-fjalls í Paarl í Suður-Afríku. Field Atlas er ævintýralegasta vín búgarðsins - óður til fjölbreytileika víngarðanna þar sem nákvæm handavinna og opinn hugur ráða för í víngerðinni.
Vínpörun
- Grillmatur
- Lambakjöt
- Villibráð
- Pottréttir
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Syrah, Mourvèdre, Grenache |
|---|
| Hérað | Simonsberg-Paarl |
|---|
| Land | Suður-Afríka |
|---|
| Áfengismagn | 13,5% |
|---|