Traust crianza rauðvín frá Navarra
Castillo de Enériz Crianza er hlýlegt og aðgengilegt rauðvín frá Navarra á Norður-Spáni. Liturinn er fallega kirsuberjarauður og ilmurinn býður upp á þroskuð rauð ber, vanillu og mild krydd. Bragðið er mjúkt og ávaxtaríkt með hóflegri fyllingu, þægilegri sýru og fáguðum tannínum sem gera vínið einkar matvænt. Crianza-þroskunin gefur víninu ávala mýkt og notalegan kryddkeim án þess að yfirgnæfa ávöxtinn. Þetta er hversdagshetja af bestu gerð; rauðvín sem klikkar ekki með kvöldmatnum og stendur fyllilega fyrir sínu í góðra vina hópi.
Framleiðandinn
Navarra er nágranni Rioja á Norður-Spáni og hefur löngum staðið í skugga frægari granna sínum, en þar leynast margar gersemar á góðu verði. Tempranillo er burðarþrúgan í rauðvínum svæðisins og Crianza-hefðin, eikarþroskun að spænskum sið, setur svip sinn á stílinn.
Vínpörun
- Grillmatur
- Lambakjöt
- Svínakjöt
- Pottréttir
- Ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Tempranillo |
|---|
| Hérað | Navarra |
|---|
| Land | Spánn |
|---|
| Áfengismagn | 13% |
|---|