Sólríkt Pinot Grigio frá Sikiley
AmaMi Pinot Grigio er ferskt og aðgengilegt hvítvín frá Sikiley með fölgylltan lit og hreinan, aðlaðandi ilm af sítrus, grænum eplum og hvítum blómum. Bragðið er létt og svalandi með líflegri sýru, snörpum sítrustónum og mjúkri, ávaxtaríkri miðju. Sólrík eyjan gefur þrúgunni örlítið meiri fyllingu og þroska en gengur og gerist í norðlægari útgáfum, en vínið heldur samt léttleika sínum og ferskleika út í gegn. Þetta er óbrotið og bráðskemmtilegt hvítvín sem á heima í sólinni, annað hvort með léttum réttum eða eitt og sér vel kælt.
Framleiðandinn
AmaMi er ítölsk vínlína með hjartað á réttum stað. Hjartamerkið á miðanum er einkennistákn hennar. Pinot Grigio hefur á síðustu áratugum orðið eitt vinsælasta hvítvín heims og þessi sikileyska útgáfa sýnir hlýrri og ávaxtaríkari hlið þrúgunnar en þær norður-ítölsku.
Vínpörun
- Fordrykkur
- Fiskur
- Skelfiskur
- Salöt
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Pinot Grigio |
|---|
| Hérað | Sikiley |
|---|
| Land | Ítalía |
|---|
| Áfengismagn | 12,50% |
|---|