Safnkassinn frá Tenuta San Guido (36 flöskur) - forpöntun
Í fyrsta sinn á Íslandi býðst vínunnendum að forpanta nýjasta árang hins heimsþekkta Sassicaia víns (2023) frá Tenuta San Guido. Safnkassinn frá Tenuta San Guido inniheldur 36 hágæða flöskur frá þessum heimsþekkta framleiðanda í Toskana og þar af eru sex flöskur af Sassicaia í trékassa.
Sassicaia 2023 (6 flöskur í trékassa)
Safngripur í hæsta gæðaflokki. Robert Parker gaf þessum árgangi 100 stig og líkti honum við hinn sögulega 1985 árgang. Vínið er silkimjúkt og flókið með ótrúlega fágun, bjarta sýru og þétt tannín sem lofa áratuga geymslugetu. Lesa nánar um Sassicaia 2023
Guidalberto 2024 (12 flöskur)
Oft kallaður „litli bróðir“ Sassicaia. Vínið hefur silkimjúka áferð og mikinn ávöxt. Frábært eðalvín sem má njóta fyrr en Sassicaia en geymist sömuleiðis einstaklega vel í kjallara. Lesa nánar um Guidalberto
Le Difese 2024 (18 flöskur)
Líflegasta vín vínhússins þar sem ferskleikinn er í fyrirrúmi. Þetta er hið fullkomna vín með ítalskri matargerð og sýnir glæsileika Tenuta San Guido á einstaklega aðgengilegan hátt. Lesa nánar um Le Difese
Framleiðandinn: Tenuta San Guido
Tenuta San Guido er eitt virtasta vínhús Ítalíu og er staðsett í Bolgheri, Toskana. Vínhúsið á heiðurinn af því að hafa hrint af stað „Súper-Toskana“ byltingunni með hinu goðsagnakennda víni Sassicaia. „Súper-Toskani” (Super Tuscan) er hugtak sem varð til yfir hágæða vín frá Toskana sem voru framleidd utan þáverandi reglugerða, oft með því að blanda alþjóðlegum þrúgum við eða í stað hinnar hefðbundnu Sangiovese-þrúgu. Stofnandinn, Mario Incisa della Rocchetta, sótti innblástur til Bordeaux og hóf ræktun á frönskum þrúgum, en vínin frá Tenuta San Guido eru í dag talin til þeirra bestu í heimi og hefur Sassicaia, sem eina vínið á Ítalíu, fengið sína eigin DOC flokkun.
ATHUGIÐ: Aðeins er hægt að forpanta safnkassann Tenuto San Guido til að tryggja sér eintak. Vínið kemur til afhendingar frá framleiðanda í september 2026