Meistaralegt Pinotage frá Stellenbosch
Beeslaar Pinotage er tignarleg, fáguð og einbeitt túlkun á þjóðarþrúgu Suður-Afríku, unnin af einstakri natni í Stellenbosch, Pinotage-þrúgan var búin til árið 1924 sem blendingur Pinot Noir og Cinsault. Þetta er „einnar ekru vín" (single vineyard) úr 27 ára gömlum vínvið. Það skartar djúpum, dimmrauðum lit og í nefi mætast dökkir ávextir, dökkt súkkulaði, kryddaður kjötilmur og fínlegur kanilkeimur. Bragðið er þétt og vöðvastælt en á sama tíma einstaklega glæsilegt, þar sem kraftmikil tannín mæta ferskum tónum af trönuberjum og hindberjum. Vínið fer í gegnum 20 mánaða þroskun á frönskum eikartunnum sem gefur því mýkt og margslungna dýpt. Þetta er meistaraverk sem sýnir Pinotage-þrúguna í sínum allra fínasta búningi. Vínið nýtur sín best eftir umhellingu í karöflu og hefur 15–20 ára geymsluþol.
Framleiðandinn
Beeslaar Wines er suður-afrískt vínhús í Stellenbosch, stofnað af víngerðarmanninum Abrie Beeslaar sem um áratuga skeið var margverðlaunaður yfirvíngerðarmaður hins virta Kanonkop og er í fremstu röð suður-afrískra víngerðarmanna. Undir eigin nafni helgar hann sig persónulegu Pinotage-verkefni í Stellenbosch, þar sem öll athyglin beinist að einni þrúgu sem hann þekkir betur en flestir. Húsið telst í dag meðal virtustu Pinotage-framleiðenda Suður-Afríku, og vín þess endurspegla djúpa reynslu Beeslaar af einkennisþrúgu landsins.
Vínpörun
-
Nautakjöt
-
Lambakjöt
-
Villibráð
-
Grillmatur
-
Þroskaðir ostar
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Pinotage |
|---|
| Hérað | Stellenbosch |
|---|
| Land | Suður-Afríka |
|---|
| Árgerð | 2020 |
|---|
| Áfengismagn | 14% |
|---|