Torrione Val d’Arno di Sopra Tenuta di Petrolo (2020)

4.750 kr Venjulegt verð 5.390 kr
Fjöldi

Ríkulegt og áhrifamikið rauðvín 

Torrione og framleiðandinn Petrolo hafa hlotið margvíslegt lof gagnrýnenda, enda er hér á ferðinni einstaklega vandað og áhrifamikið vín. Vínið er aðallega unnið úr hinni hefðbundnu Sangiovese þrúgu sem ræður ríkjum í Toskana héraðinu á Ítalíu. Í glasi er vínið djúprautt á litinn og býður upp á glæsilegan vönd sem einkennist af sólberjum, fjólum sem og keim af tóbaki, myntu og kryddi. Í munni gefur vínið tilfinningu af hlýjum ávöxtum, miklum tannínum og sérlega löngu eftirbragði.

Framleiðandinn

Petrolo er einstaklega vinsæll framleiðandi í Toskana sem hefur náð ótrúlegum árangri á undanförnum þremur áratugum og sérstöðu meðal alþjóðlegra gagnrýnenda. Petrolo framleiðir meðal annars eitt vinsælasta Merlot-vín Ítalíu “Galatrona” og er oft borið saman við franska lúxus framleiðendur eins og “Le Pin” eða “Pétrus”. Tenuta di Petrolo, er ótrúlega fallega staðsett á hæðóttu svæði sunnan við bæinn Siena í suðurhluta Toskana. Víngerðin er metnaðarfull og lífræn og allar þrúgur eru ræktaðar á fullkomlega náttúrulegan hátt. Petrolo notar engan áburð, hvorki lífrænan né ólífrænan og notar ekki eiturefni á vínekrunum. Öll vínin frá Petrolo eru lífrænt vottuð.

Vínpörun

  • Nautakjöt

  • Lambakjöt

  • Svínakjöt

  • Pastaréttir

  • Ostar

Viðurkenningar

  • James Suckling: 95 stig

  • Robert Parker: 93 stig

  • Winescritic.com: 93 stig

  • Vinous: 92 stig

 

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaSangiovese, Merlot, Cabernet Sauvignon
HéraðToskana
LandÍtalía
Árgerð2019
Áfengismagn14%