Hágæða Rioja Reserva
Bodegas Remelluri er elsti vínkastallinn í Rioja og aðdáendur þessara vína verða ekki sviknir af þessu lífrænt ræktaða en hefðbundna Reserva víni. Vínið er sérlega vandað og það er látið þroskast í eikartunnu í 17 mánuði og 3 mánuði á flösku. Útkoman er þétt og ríkulegt vín með fínum tannínum og góðu jafnvægi. Ilmurinn býður upp á hefðbundinn rauðan berjaávöxt sem einkennir Tempranillo-þrúgunar, sem og keim af vanillu, kryddi og steinefnum. Bragðið er fágað og ávaxtaríkt með ríkum keim af kirsuberjum og plómu. Eftirbragðið er langt og það má greina steinefnin í lokin.
Framleiðandinn
Remelluri er elsti vínkastali Rioja héraðsins og hefur rætur sínar að rekja aftur til ársins 1596. Síðan 2010 hefur Telmo Rodriguez leitt framleiðslu fjölskyldunnar. Telmo hefur tekið virkan þátt í að gjörbylta gæðavíni á Spáni og hefur hlotið mikla alþjóðlega viðurkenningu (98P frá James Suckling og 1. Cru flokkun frá Tim Atkin árið 2018).
Sem stendur er verið að breyta Remelluri í lífræna ræktun og bíódínamíska framleiðslu.
Vínpörun
- Villibráð
- Nautakjöt
- Alifugl
- Grillkjöt
Viðurkenningar
- Penin: 93 point
- Robert Parker: 93 point
Upplýsingar um vínið
| Þrúga | Tempranillo |
|---|
| Hérað | Rioja |
|---|
| Land | Spánn |
|---|
| Árgerð | 2014 |
|---|
| Áfengismagn | 14% |
|---|