Gotes Priorat Portal del Priorat (2022)

5.490 kr Venjulegt verð
fjöldi

Safaríkt og ferskt rauðvín
Gotes del Priorat er ferskt og líflegt rauðvín sem leikur sér að mörkum jafnvægis og náttúrulegrar tjáningar. Vínið er unnið úr blöndu af Garnacha, Cariñena og Syrah þrúgum sem eru handtíndar af 20 - 40 ára gömlum vínvið sem vex í ca. 400 metra hæð yfir sjávarmáli. Eftir gerjun í stáltönkum er vínið látið þroskast í 12 mánuði í eikartunnum. Ilmurinn einkennist af lakkrís og balsamik (sem er einkennandi fyrir rauðvín frá Priorat), en inniheldur einnig keim af kirsuberjum og villtum berjum. Bragðið er viðvarandi og einkennist af mjúkum tannínum, rafmögnuðum ferskleika og ríkulegum ávexti. 

Framleiðandinn
Priorat er staðsett í Katalóníu á norðaustur Spáni. Þetta er lítið, fjalllent og afskekkt svæði inn í landinu, suðvestur af Barcelona. Svæðið einkennist af bröttum hlíðum og mikilli hæð, en vínekrurnar liggja gjarnan í 370 til 450 metra hæð yfir sjávarmáli. Portal del Priorat er verkefni undir stjórn arkitektsins og víngerðarmannsins Alfredo Arribas. Víngerðin er staðsett í El Molar í Priorat og leggur áherslu á að skapa vín sem endurspegla hið harðbýla en einstaka landslag svæðisins. Áherslan er lögð á lífræna ræktun og virðingu fyrir umhverfinu.

Vínpörun

  • Nautakjöt

  • Lambakjöt

  • Villibráð

  • Kálfakjöt

  • Ostar

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaGarnacha, Cariñena, Syrah
HéraðPriorat
LandSpánn
Árgerð2022
Áfengismagn14 %