Lúxusvín frá Bolgheri í Toskana
Guidalberto er oft kallað „litli bróðir“ hins goðsagnakennda Sassicaia rauðvíns, enda var það upprunalega hannað með því markmiði að bjóða upp á aðgengilegt lúxusvín. Guidalberto er „Súper Toskani” frá hinu víðfræða Bolgheri-svæði, sem er unnið úr blöndu af Cabernet Sauvignon og Merlot. Vínið er djúprautt á litinn og býður upp á tælandi ilm af sólberjum, kirsuberjum, sedrusviði og Miðjarðarhafskryddum. Bragðið er tignarlegt, mjúkt og vel uppbyggt með silkimjúkum tannínum og mikilli dýpt. Þetta er vín sem sýnir af hverju Tenuta San Guido er ein virtasta víngerð heims. Vínið má drekka núna með góðri umhellingu (a.m.k. 1 klst. áður en það er borið fram), en við mælum með að geyma það í nokkur ár og opna við hátíðlegt tækifæri.
Framleiðandinn
Tenuta San Guido er eitt virtasta vínhús Ítalíu og er staðsett í Bolgheri, Toskana. Vínhúsið á heiðurinn af því að hafa hrint af stað „Súper Toskana“ byltingunni með hinu goðsagnakennda víni Sassicaia. „Súper Toskani” (Super Tuscan) er hugtak sem lýsir hágæða ítölskum vínum frá Toskana, sem eru framleidd utan hefðbundinna reglugerða DOC og DOCG flokkunarkerfisins. Þessi vín eru oft blönduð með alþjóðlegum þrúgum í stað þess að byggja eingöngu á hefðbundnu Sangiovese-þrúgunni. Stofnandinn, Mario Incisa della Rocchetta, sótti innblástur til Bordeaux og hóf ræktun á frönskum þrúgum, en vínin frá Tenuta San Guido eru talin til þeirra bestu í heimi.
Vínpörun
-
Grillréttir
-
Pastaréttir
-
Nautakjöt
-
Alifugl
-
Villibráð
Upplýsingar
Viðurkenningar