Torrione Val d´Arno di Sopra Tenuta di Petrolo Øko 2022

5.300 kr
Tegund

Ríkulegt og áhrifamikið rauðvín

Torrione og framleiðandinn Petrolo hafa hlotið margvíslegt lof gagnrýnenda, enda er hér á ferðinni einstaklega vandað og áhrifamikið vín. Vínið er aðallega unnið úr hinni hefðbundnu Sangiovese þrúgu sem ræður ríkjum í Toskana héraðinu á Ítalíu ásamt fínlegri blöndu af Merlot og Cabernet Sauvignon. Í glasi er vínið djúprautt á litinn og býður upp á glæsilegan vönd sem einkennist af sólberjum, kirsuberjum, fjólum sem og keim af nýju leðri og sedrusviði. Bragðið er hlýtt og einkennist af hreinum ávöxtum, mjúkum tannínum og sérlega löngu og fáguðu eftirbragði.

Framleiðandinn

Petrolo er einstaklega vinsæll framleiðandi í Toskana sem hefur náð ótrúlegum árangri á undanförnum þremur áratugum og sérstöðu meðal alþjóðlegra gagnrýnenda. Petrolo framleiðir meðal annars eitt vinsælasta Merlot-vín Ítalíu “Galatrona” og er oft borið saman við franska lúxus framleiðendur eins og “Le Pin” eða “Pétrus”. Tenuta di Petrolo, er ótrúlega fallega staðsett á hæðóttu svæði sunnan við bæinn Siena í suðurhluta Toskana. Víngerðin er metnaðarfull og lífræn og allar þrúgur eru ræktaðar á fullkomlega náttúrulegan hátt. Petrolo notar engan áburð, hvorki lífrænan né ólífrænan og notar ekki eiturefni á vínekrunum. Öll vínin frá Petrolo eru lífrænt vottuð.

Vínpörun

  • Nautakjöt
  • Lambakjöt
  • Pottréttir
  • Pastaréttir
  • Ostar

Upplýsingar um vínið

ÞrúgaSangiovese (80%), Merlot (15%), Cabernet Sauvignon (5%)
HéraðToskana
LandÍtalía
Árgerð2022