Nútímalegt rauðvín frá Toskana
Chianti Nuova Generazione er grípandi tjáning á nútímalegu Chianti rauðvíni (vínhérað í Toskana). Vínið er rúbínrautt á litinn og ilmar af þroskuðum dökkum ávöxtum eins og plómum, brómberjum og svörtum kirsuberjum. Vínið er látið þroskast í 6 mánuði í eikartunnum sem gefur þar að auki fíngerðan, en einkennandi keim af vanillu og mokka eða tóbakki. Þrúgurnar í þessu víni eru látnar þroskast lengi á vínviðnum. Þetta skilar sér í meiri fyllingu og sætara ávaxtabragði, ekkert ósvipað Ripasso eða Amarone vínum þar sem þrúgurnar eru sólþurkaðar áður en þær eru pressaðar. Bragðið er í góðu jafnvægi og tannínin eru mjúk sem gefur langa og glæsilega áferð.
Framleiðandinn
Fjölskyldan rekur uppruna sinn til Toskana - árið 1837 í bænum Poggibonsi. Víngerðarmaðurinn Franco Bernabei hefur starfað í hinni frægu Ruffino víngerð í Toskana og hjá nokkrum öðrum stórum framleiðendum. Árið 1996 stofnaði Franco Bernabei Riolite Vini sem býr til vín í samstarfi við staðbundna framleiðendur í mismunandi vínhéruðum á Ítalíu.
Vínpörun
-
Pastaréttir
-
Ostar
-
Grillkjöt
-
Tapas
Upplýsingar
-
Land: Ítalía
-
Svæði: Toskana
-
Þrúga: Sangiovese (90%), Merlot (10%)
-
Árgerð: 2022
-
Áfengismagn: 13%
-
Vínið er lífrænt, bíódínamískt og vegan
Viðurkenningar