Château Plincette Pomerol (2022)

5.190 kr Venjulegt verð
fjöldi

Château Plincette

Mjúkt og tælandi hátíðarvín  

Château Plincette 2022 er klassískt og heillandi vín frá hinu eftirsótta Pomerol-svæði í Bordeaux. Vínið er unnið úr blöndu af Merlot og Cabarnet Franc og skartar djúpum granatrauðum lit með fjólubláum bjarma. Ilmurinn einkennist af svörtum kirsuberjum, plómum og fínlegum keim af blómum, ásamt votti af súkkulaði og kryddi. Vínið er fyllingarmikið og ávaxtaríkt með steinefnakenndum undirtóni, þar sem vel samofin tannín gefa því silkimjúka áferð og langt eftirbragð. Þetta er fágað og glæsilegt Bordeaux-vín.

Framleiðandinn

Château Plincette er í eigu Vignobles Jean-Pierre Estager, fjölskyldu sem hefur ræktað vín í Libournais-svæðinu í kynslóðir. Vínekrurnar liggja á sendnum jarðvegi í Pomerol, sem hentar Merlot-þrúgunni einstaklega vel og gefur vínunum mýkt og fínleika frekar en hörku. Fjölskyldan leggur áherslu á nákvæmni í víngerðinni til að framleiða vín sem eru aðgengileg ung en hafa jafnframt getu til að þroskast.

Vínpörun

  • Nautakjöt

  • Lambakjöt

  • Villibráð

  • Kálfakjöt

  • Ostar

Upplýsingar

  • Land: Frakkland

  • Svæði: Bordeaux

  • Þrúga: Merlot (70%), Cabernet Franc (30%)

  • Áfengismagn: 14 %

Viðurkenningar

  • James Suckling: 93 stig