{"product_id":"gotes-priorat-portal-del-priorat","title":"Gotes Priorat Portal del Priorat (2022)","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cstrong\u003eSafaríkt og ferskt rauðvín\u003c\/strong\u003e \u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-family: -apple-system, BlinkMacSystemFont, 'San Francisco', 'Segoe UI', Roboto, 'Helvetica Neue', sans-serif; font-size: 0.875rem;\"\u003eGotes del Priorat er ferskt og líflegt rauðvín sem leikur sér að mörkum jafnvægis og náttúrulegrar tjáningar. Vínið er unnið úr blöndu af Garnacha, Cariñena og Syrah þrúgum sem eru handtíndar af 20 - 40 ára gömlum vínvið sem vex í ca. 400 metra hæð yfir sjávarmáli. Eftir gerjun í stáltönkum er vínið látið þroskast í 12 mánuði í eikartunnum. Ilmurinn einkennist af lakkrís og balsamik (sem er einkennandi fyrir rauðvín frá Priorat), en inniheldur einnig keim af kirsuberjum og villtum berjum. Bragðið er viðvarandi og einkennist af mjúkum tannínum, rafmögnuðum ferskleika og ríkulegum ávexti. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-family: -apple-system, BlinkMacSystemFont, 'San Francisco', 'Segoe UI', Roboto, 'Helvetica Neue', sans-serif; font-size: 0.875rem;\"\u003ePriorat er staðsett í Katalóníu á norðaustur Spáni. Þetta er lítið, fjalllent og afskekkt svæði inn í landinu, suðvestur af Barcelona. Svæðið einkennist af bröttum hlíðum og mikilli hæð, en vínekrurnar liggja gjarnan í 370 til 450 metra hæð yfir sjávarmáli. Portal del Priorat er verkefni undir stjórn arkitektsins og víngerðarmannsins Alfredo Arribas. Víngerðin er staðsett í El Molar í Priorat og leggur áherslu á að skapa vín sem endurspegla hið harðbýla en einstaka landslag svæðisins. Áherslan er lögð á lífræna ræktun og virðingu fyrir umhverfinu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eNautakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eLambakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eVillibráð\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eKálfakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eOstar\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":47722292150516,"sku":null,"price":5490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":47722292183284,"sku":null,"price":29646.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/gotes-vk.png?v=1771774067","url":"https:\/\/vinklubburinn.is\/products\/gotes-priorat-portal-del-priorat","provider":"Vínklúbburinn","version":"1.0","type":"link"}