{"product_id":"fish-thau-picpoul-de-pinet-2024","title":"Fish \u0026 Thau Picpoul de Pinet (2024)","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFerskt og sumarlegt hvítvín\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFish \u0026amp; Thau er brakandi ferskt og tært hvítvín sem er fullkominn félagi við sjávarfang. Vínið hefur glitrandi ljósgulan lit og opnast með ilm af sítrus, þroskuðum steinávöxtum, ferskri sjávarseltu og fíngerðum hvítum blómum. Bragðið er líflegt og svalandi, drifið áfram af stökkri sýru og steinefnakenndri dýpt. Vínið er látið gerjast hægt og við lágt hitastig til að draga fram ríkulegan ilm þrúgunnar. Að gerjun lokinni hvílir vínið í tvo mánuði á fínu botnfalli áður en það fær fimm mánuði í stáltönkum til að varðveita ferskleika þrúgunnar. Þetta er svalandi hvítvín sem fangar sanna Miðjarðarhafsstemningu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eArtisans Partisans er teymi frá Domaine Ollieux Romanis; þrír vínbúgarðar sem hafa sameinast í einum tilgangi: að framleiða gott og hreint vín. Hugmyndafræði þeirra er að vinna með og fara vel með jarðveg svæðisins (terroir) og ávallt gera það sem er best fyrir umhverfið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eFordrykkur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFiskur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSkelfiskur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAsískir réttir\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48328888615156,"sku":"VK231223","price":4300.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48328888647924,"sku":"VK231223-6pk","price":23220.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/GotesFish_Tau.png?v=1779630878","url":"https:\/\/vinklubburinn.is\/products\/fish-thau-picpoul-de-pinet-2024","provider":"Vínklúbburinn","version":"1.0","type":"link"}