{"product_id":"barbera-dalba-trediberri-2024","title":"Barbera d'Alba Trediberri 2024","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSafarík og sjarmerandi Barbera\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSafaríkt og sjarmerandi rauðvín sem sýnir dæmigerðan og skýran blá-fjólubláan Barbera lit í glasinu. Ilmurinn er ákaflega bjartur og ferskur, yfirfullur af rauðum skógarberjum, rifsberjum og safaríkum plómum, ásamt fínlegum keim af blómum. Vínið er gerjað og þroskað í stáltönkum til að varðveita tæran ávaxtakarakter og koma í veg fyrir að eikartónar yfirgnæfi ferskleikann. Bragðið er meðalfyllt, ungt og spennandi, knúið áfram af líflegri sýru og mildum tannínum. Eftirbragðið er hreint, svalandi og einkennist af kröftugum berjatónum. Þetta er klassísk og mjög vel gerð Barbera sem er afar matvæn og ljúffeng við öll tækifæri.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTrediberri er þekkt fyrir glæsileg og búrgúndísk Barolo vín frá hinu fræga sveitarfélagi La Morra í Piemonte héraðinu. Vínbúgarðurinn er lítill (8 hektarar) og er lífrænt vottaður (síðan 2015) sem þýðir að ekki eru notuð nein eiturefni og mikill metnaður er lagður í lífræðilegan fjölbreytileika á ökrunum. Markmið Trediberri er að framleiða þægileg hágæða vín þar sem styrkur og tannín eru ekki allsráðandi en einkennast fremur af glæsileika og góðu jafnvægi milli ávaxtabragðs og sýrustigs. Á stuttum tíma hefur Trediberri skapað sér nafn og hlotið mikið lof erlendra gagnrýnenda. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eAlifugl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003ePottréttir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003ePastaréttir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eOstar\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eUpplýsingar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eLand: Ítalía\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSvæði: Piemonte\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÞrúga: Barbera\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁrgerð: 2024\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁfengismagn: 14,5%\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48548742988020,"sku":"69201324","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48548743020788,"sku":"69201324-6pk","price":26460.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/Barbera-d_alba-trediberri.png?v=1781182042","url":"https:\/\/vinklubburinn.is\/products\/barbera-dalba-trediberri-2024","provider":"Vínklúbburinn","version":"1.0","type":"link"}