{"title":"Pinot Noir rauðvín","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePinot Noir er fágaðasta rauðvínsþrúga heims: l\u003c\/strong\u003eétt á lit en djúp í bragði, með rauð ber, jarðartóna og silkimjúk tannín. Hún er jafnframt sú vandræktaðasta, og þess vegna verðlaunar hún þau sem velja vel.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ úrvalinu okkar mætast gamli og nýi heimurinn: klassísk Búrgundarvín á borð við \u003ca href=\"\/products\/gevrey-chambertin-la-justice-domaine-henri-felettig\"\u003eGevrey-Chambertin\u003c\/a\u003e, kaliforníska hliðin með \u003ca href=\"\/products\/goldeneye-anderson-valley-pinot-noir\"\u003eGoldeneye úr Anderson Valley\u003c\/a\u003e og einnar ekru vín á borð við \u003ca href=\"\/products\/calera-mills-pinot-noir\"\u003eCalera á Mt. Harlan\u003c\/a\u003e og fleir aðgengilegri kostir fyrir hversdaginn.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePinot Noir er oft talið matarvænasta rauðvínið: alifugl, lax, sveppir og villibráð eru sígildir félagar. Sjá \u003ca href=\"\/pages\/vin-og-matur\"\u003evín og mat\u003c\/a\u003e og \u003ca href=\"\/collections\/raudvin\"\u003eöll rauðvínin\u003c\/a\u003e.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"josh-cellars-pinot-noir-central-coast","title":"Josh Cellars Pinot Noir Central Coast","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eSumarlegt rauðvín\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞetta glæsilega og svipmikla rauðvín á rætur sínar að rekja til Kaliforníu. Það er unnið úr Pinot Noir þrúgum sem eru handtíndar snemma morguns, rétt fyrir sólarupprás, en morgunsvalinn gefur aukinn ferskleika í vínið. Vínið sýnir fallegan rúbínrauðan blæ og tælandi ilm af þroskuðum kirsuberjum, hindberjum og fíngerðum keim af ristaðri eik. Bragðið einkennist af safaríkum rauðum berjum, plómu og keim af vanillu. Sýran er í góðu jafnvægi við mjúk tannín og bragðið ber með sér hefðbundinn Pinot Noir keim af skógarbotni og hlýlegum kryddum. Eftirbragðið er mjúkt og viðvarandi og heilt yfir er vínið bæði aðgengilegt og fágað.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eJosh Cellars er bandarísk víngerð sem er staðsett á tveimur stöðum í Kaliforníu (Paso Robles og Mendocino) og í Oregon. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eVíngerðin var stofnuð árið 2007 af bandaríska víngerðar manninum Joseph Carr. Josh Cellars er þekkt fyrir gæði og vandað handverk og víngerðin hefur þar af leiðandi notið töluverða vinsælda í bandaríkjunum fyrir að bjóða upp á aðgengileg lúxusvín. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eFiskur\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eAlifugl\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eSvínakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eKálfakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eUpplýsingar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eLand: USA\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eSvæði: Kalifornía\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞrúga: Pinot Noir\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÁrgerð: 2022\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÁfengismagn: 13,5%\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cb\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eViðurkenningar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli aria-level=\"1\" dir=\"ltr\"\u003e\n\u003cp role=\"presentation\" dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eWine Enthusiast: 92 stig.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":45818400145652,"sku":null,"price":4190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":45818400178420,"sku":null,"price":22626.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/Josh_ce9b1f8e-022b-4b97-98b1-61afa1bb9ea7.png?v=1726246282"},{"product_id":"marsannay-clos-du-roy-domaine-charles-audoin-2021","title":"Marsannay Clos du Roy Domaine Charles Audoin (2021)","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eFerskt og þokkafullt rauðvín\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eMarsannay Clos du Roy frá Domaine Charles Audoin býður upp á djúpstæða tjáningu á Pinot Noir frá Cote de Nuits. Vínekrurnar er staðsettar í tæplega 300 metra hæð og vínin þaðan einkennast af miklum ferskleika og kröftugum ilm af ljósum, rauðum ávöxtum. Þetta vín er engin undantekning. Liturinn er einkennandi djúp rúbínrauður og ilmurinn inniheldur fíngerðan keim af  skógarbotni og hlýrri jörð. Jarðvegurinn inniheldur mikið magn af kalksteini og er því ríkur af kalki og járni. Þetta skilar sér í steinefnakenndri áferð og svölum ferksleika. Bragðið er lagskipt og flókið með keim af kryddi og kakói sem leika létt um nef og góm. Áferðin er þokkafull og vínið hefur meðal fyllingu með fíngerðum tannínum sem skilar sér í viðvarandi eftirbragði.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eDomain Charles Audoin er að finna í Marsannay sem er lítill bær staðsettur í Côte de Nuits, rétt sunnan við Dijon. Côte de Nuits er eitt af fimm vínræktarsvæðunum í Bourgogne og það er heimsfrægt fyrir að framleiða bestu og fínustu rauðvínin í Bourgogne. Charles Audoin er ókrýndur Konungur Marsannay og er talinn eiga bestu vínekur svæðisins, enda hafa vínin hans hlotið lof frá alþjóðlegum gagnrýnendum á borð við Robert Parker. Domain Charles Audoin stundar lífræna víngerð og hefur verið með vottun frá og með árgerð 2020.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eAlifugl\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eNautakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eVillibráð\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eKálfakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eUpplýsingar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eVíngerð: Rauðvín\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eLand: Frakkland\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eSvæði: Bourgogne\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eÞrúga: Pinot Noir\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eÁrgerð: 2021\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eÁfengismagn: 13%\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eViðurkenningar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eJames Suckling: 94 point\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eRobert Parker: 92 point\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":45916487909620,"sku":null,"price":8400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":45916487942388,"sku":null,"price":40824.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/Marsanne-Clos-du-Roy.png?v=1730829927"},{"product_id":"la-myotte-2020","title":"La Myotte (2020)","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eLífrænt og fágað rauðvín\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eÞetta frábæra og flókna rauðvín er unnið úr Pinot Noir þrúgum af elstu vínviðum hússins (frá 1956), enda eru aðeins framleiddar u.þ.b. 3000 flöskur á ári. Vínið hefur fallegan rúbínrauðan lit með ilm af plómum, jarðarberjum, kirsuberjum, sólberjum, hráu kakói og kryddi. Miðlungs fylling, lífleg sýra og silkimjúk tannín einkenna þetta vín sem er unnið eftir vistvænni hugmyndafræði og af virðingu fyrir náttúrunni. Það er látið þroskast í 11 mánuði á eik. Vínið er mjúkt, rjómakennt og ferskt með skemmtilega keim af rauðum berjum. Heilt yfir frábær Pinot Noir sem flestir geta notið og hentar sérlega vel með grænmetisréttum, kjöti og tapas.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003eDomain Guillot-Broux er að finna í þorpinu Cruzille sem er hluti af Mâconnais og er syðsta og stærsta vínræktarsvæðið í Bourgougne. Mâconnais er mest þekkt framleiðslu á hvítvíni, en líkt og alls staðar í Bourgogne má þar einnig finna frábær rauðvín. Domaine Guillot-Broux var stofnað árið 1978 af Jean-Gérard Guillot og eiginkonu hans Jacqueline Broux en hefur verið rekið af sonum þeirra Emmanuel og Patrice síðan árið 2008. Með 17 hektara af vínekrum í Cruzille, Grévilly og Chardonnay, framleiða þeir vín undir merkingu “Mâcon Cruzille” og “Mâcon Chardonnay”. Domain Guillot-Broux framleiðir lífrænt vottuð vín og nýrri árgangar eru einnig bíódýnamískir. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eGrillmatur\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eSvínakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eLambakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eNautakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eOstar\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":45916492660980,"sku":null,"price":9400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":45916492693748,"sku":null,"price":50760.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/LaMyotte.png?v=1729511606"},{"product_id":"fin-del-mundo-reserva-pinot-noir","title":"Fin Del Mundo Reserva Pinot Noir (2024)","description":"\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003ePinot Noir frá Patagóníu\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eFin Del Mundo Reserva er safaríkt og fágað Pinot Noir frá hinu afskekkta og óspillta vínhéraði Patagóníu í suðurhluta Argentínu. Vínið skartar fallegum rúbínrauðum lit og það býður upp á ákaflega tælandi ilm af ferskum rauðum berjum og fíngerðum kryddum. Bragðið er silkimjúkt og brakandi ferskt og fínleg tannín og lífleg sýra gefa víninu fullkomið jafnvægi og glæsilegt, hreint eftirbragð. Kælingin frá Andesfjöllunum tryggir hér mjög frískandi og fágað Pinot Noir sem leikur við bragðlaukana.\u003c\/span\u003e\u003cb\u003e\u003c\/b\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan style=\"font-family: -apple-system, BlinkMacSystemFont, 'San Francisco', 'Segoe UI', Roboto, 'Helvetica Neue', sans-serif; font-size: 0.875rem;\"\u003eBodega del Fin del Mundo er staðsett í San Patricio del Chañar í Neuquén í norðanverðri Patagóníu. Víngerðin var stofnuð árið 1999 sem fyrsta og stærsta víngerð svæðisins sem er bæði vindasamt og afskekkt, enda vísar nafnið til þess (“víngerð á hjara veraldar”). Bodega del Fin del Mundo leggur áherslu á að framleiða vín úr Chardonnay og Pinot Noir þrúgum og hefur hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi vín. Með því að sameina hefðbundnar aðferðir og nútíma tækni hefur Bodega del Fin del Mundo skapað sér nafn sem leiðandi framleiðandi á hágæða vínum frá Patagóníu. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eSvínakjöt\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eAlifugl\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eGrillmatur \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eKálfakjöt \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003ePastaréttir\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\n\u003cp dir=\"ltr\"\u003e\u003cstrong\u003eViðurkenningar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli dir=\"ltr\" aria-level=\"1\"\u003e\n\u003cp dir=\"ltr\" role=\"presentation\"\u003e\u003cspan\u003eVinous: 90 stig\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":47916716425460,"sku":null,"price":3190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":47916716458228,"sku":null,"price":17226.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/fin-del-mundo.png?v=1774791181"},{"product_id":"gevrey-chambertin-la-justice-domaine-henri-felettig","title":"Gevrey-Chambertin La Justice Domaine Henri Felettig 2021","description":"\u003cp\u003eDjúprúbínrautt og gljáandi í glasi. Angan er áköf af þroskuðum dökkum kirsuberjum, villtum hindberjum og fjólum, með fágaðri steinefnasveiflu í bakgrunni. Bragðið er þétt og listilega uppbyggt með ríkulegum keim af skógarberjum og fíngerðum jarðbundnum tónum sem fléttast saman. Silkimjúk tannín og tælandi áferð leiða að löngu og viðvarandi eftirbragði þar sem ferskleiki og hlýlegur kraftur mætast í glæsilegu jafnvægi og mikilli dýpt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eDomaine Felettig er fjölskyldurekin víngerð staðsett í hjarta Búrgúndí, þar sem þrjár kynslóðir hafa lagt metnað í að framleiða vín sem endurspegla einstakt terroir svæðisins. Henri Felettig, sem tók við rekstrinum árið 1965 með aðeins 2 hektara víngarða, hefur með alúð og virðingu fyrir náttúrunni aukið eignir sínar í 13 hektara, þar sem meðalaldur vína er 40 ár. Með áherslu á náttúrulegar aðferðir og virðingu fyrir jörðinni, framleiða þau vín sem eru bæði hreinskilin og full af karakter, sem endurspeglar ástríðu og handverk fjölskyldunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eAlifugl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSvínakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eTómatréttir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eGrænmetisréttir\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48329097249012,"sku":"21651319","price":11600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48329097281780,"sku":"21651319-6pk","price":62640.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/justice.png?v=1780096267"},{"product_id":"calera-central-coast-pinot-noir","title":"Calera Central Coast Pinot Noir","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞokkafullur Pinot frá Kaliforníu\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCalera Central Coast Pinot Noir er fagurrautt vín með glampandi rúbínlit. Ilmurinn er heillandi og lagskiptur: kirsuber, hindber, rósablöð, örlítið af kryddi og fíngerður jarðartónn sem einkennir vandaðan Pinot Noir. Bragðið er silkimjúkt og safaríkt, með meðalfyllingu, ferskri sýru og fínslípuðum tannínum sem renna ljúflega í gegn. Ávöxturinn er í forgrunni en vínið hefur einnig dýpt og lengd sem lyfta því upp frá hversdagsleikanum. Svalir vindar af Kyrrahafinu setja mark sitt á Central Coast og gefa þrúgunum langan þroskatíma, sem skilar sér í fallegu jafnvægi milli þroskaðs ávaxtar og ferskleika. Þetta er þokkafullt og aðgengilegt Pinot Noir sem sýnir vel hvað Kalifornía getur gert við þessa vandmeðförnu þrúgu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCalera er eitt af goðsagnakenndu Pinot Noir-húsum Kaliforníu. Josh Jensen stofnaði húsið árið 1975 eftir að hafa numið víngerð í Búrgund og leitaði uppi kalksteinsjarðveg í Mt. Harlan-fjöllunum til að rækta Pinot Noir í búrgundískum anda. Húsið varð brautryðjandi í bandarískri Pinot-ræktun og nýtur mikillar virðingar meðal vínunnenda um allan heim. Central Coast útgáfan er aðgengilegri hlið hússins: vín sem færir handbragð og stíl Calera í glasið án langrar biðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eAlifugl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSvínakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVillibráð\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003ePottréttir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eOstar\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48857847824628,"sku":"25021","price":5677.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48857847857396,"sku":"25021-6pk","price":30656.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/calera-central-coast-pinot-noir.png?v=1784192735"},{"product_id":"calera-mills-pinot-noir","title":"Calera Mills Pinot Noir (2016)","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFágætt Pinot Noir ræktað í kalksteinsjarðvegi í Kaliforníu\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCalera Mills Pinot Noir er einnar ekru vín af hæsta gæðaflokki frá Mt. Harlan í Kaliforníu. Liturinn er fremur ljós og glansandi rúbínrauður, eins og góðum Pinot sæmir. Ilmurinn er margslunginn: villt jarðarber, kirsuber, rósablöð, skógarbotn og kryddaður undirtónn sem dregur fram kalksteininn sem vínviðurinn vex á. Bragðið er silkimjúkt en um leið þétt, með fínslípuðum tannínum, lifandi sýru og löngu, steinefnakenndu eftirbragði. Vínið hefur allt sem þarf til langrar geymslu og græðir á umhellingu í karöflu sé það opnað ungt. Þetta er Pinot Noir fyrir sælkera. Vín með sál, uppruna og sjaldgæfa dýpt sem fáir víngarðar vestanhafs geta státað af.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCalera var stofnað af Josh Jensen, sem heillaðist af Pinot Noir í Búrgund og leitaði árum saman að kalksteinsjarðvegi í Kaliforníu áður en hann fann hann hátt uppi á Mt. Harlan. Mills er einn af rómuðu einteigsvíngörðum Jensens á fjallinu og vínin þaðan eru fágæt og margverðlaunuð. Kalksteinninn, hæðin og svalt loftslag gefa vínunum sýru, steinefni og geymsluþol sem minnir fremur á Búrgund en Kaliforníu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eVillibráð\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAlifugl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLambakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSvínakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eOstar\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48857847988468,"sku":"27368","price":9234.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48857848021236,"sku":"27368-6pk","price":49864.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/calera-mills-pinot-noir.png?v=1784192740"},{"product_id":"calera-ryan-pinot-noir","title":"Calera Ryan Pinot Noir (2019)","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFágað Pinot Noir frá Mt. Harlan\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRyan Pinot Noir er miðlungsdjúpt rúbínrautt með björtum ljóma. Ilmurinn er heillandi og lagskiptur: kirsuber, hindber, rósablöð, skógarbotn og fínlegt krydd sem vindur ofan af sér í glasinu. Bragðið er silkimjúkt en einbeitt, með safaríkum rauðum ávexti, lifandi sýru og fíngerðum tannínum sem bera vínið langt fram í eftirbragðið. Kalksteinsjarðvegurinn á Mt. Harlan setur svip sinn á vínið með svalri, steinefnakenndri spennu sem greinir það frá flestum kalifornískum Pinot Noir. Þetta er vín sem launar þolinmæði. Það opnast fallega í karöflu og á inni frekari þroska í kjallara eða vínskáp. Fágað, ljóðrænt og eftirminnilegt rauðvín fyrir þá sem unna Pinot Noir í sinni tærustu mynd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eCalera er einn af brautryðjendum bandarískrar Pinot Noir-ræktunar og hefur frá upphafi einbeitt sér að kalksteinsríkum hlíðum Mt. Harlan í Kaliforníu, fjarri fjölförnustu vínsvæðunum. Þar ræktar húsið nokkra aðgreinda einteigsvíngarða og tappar hverjum þeirra á flöskur undir eigin nafni. Ryan er annar þessara einteiga og gefur vín sem sameinar kaliforníska sól og evrópska fágun - skýr vitnisburður um sérstöðu Calera í bandarískri víngerð.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eAlifugl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVillibráð\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLambakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSvínakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eOstar\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48857848086772,"sku":"27367","price":10282.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48857848119540,"sku":"27367-6pk","price":55523.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/calera-ryan-pinot-noir.png?v=1784192742"},{"product_id":"goldeneye-anderson-valley-pinot-noir","title":"Goldeneye Anderson Valley Pinot Noir (2020)","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSilkimjúkt Pinot Noir úr Anderson Valley\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGoldeneye Anderson Valley Pinot Noir er fallega rúbínrautt vín með dýpt sem lofar góðu. Ilmurinn er heillandi og margslunginn: þroskuð kirsuber, hindber og villt jarðarber, undirlögð skógarbotni, rósablöðum og fínlegu vanillukryddi. Í munni er vínið silkimjúkt og safaríkt, með flauelskenndum tannínum, lifandi sýru og fágaðri byggingu sem ber svölu loftslagi Anderson Valley fagurt vitni. Þokan frá Kyrrahafinu hægir á þroska berjanna og skilar bæði ferskleika og dýpt í glasið. Eftirbragðið er langt, kryddað og elegant. Þetta er Pinot Noir í efri gæðaflokki, jafnfær um að standa einn og sér og að lyfta villibráð eða alifugli á hærra plan.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eFramleiðandinn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGoldeneye er Pinot Noir-hús Duckhorn fjölskyldunnar, stofnað árið 1996 í hinum svala og þokusama Anderson Valley í Mendocino-sýslu, norður af San Francisco. Dalurinn opnast út að Kyrrahafinu og kalt sjávarloftið gerir hann að einu besta Pinot Noir-svæði Kaliforníu. Frá upphafi hefur Goldeneye einbeitt sér að þessari einu þrúgu og ræktar hana á völdum ekrum um dalinn, með það að markmiði að fanga bæði kraft Kaliforníu og fágun svalari heimkynna þrúgunnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVínpörun\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eVillibráð\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eAlifugl\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSvínakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLambakjöt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eOstar\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Vínklúbburinn","offers":[{"title":"Stakar flöskur","offer_id":48857852805364,"sku":"27369","price":7793.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"6 flöskur kassi (10% afsláttur)","offer_id":48857852838132,"sku":"27369-6pk","price":42082.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0639\/4042\/8020\/files\/goldeneye-anderson-valley-pinot-noir.png?v=1784192816"}],"url":"https:\/\/vinklubburinn.is\/collections\/pinot-noir.oembed","provider":"Vínklúbburinn","version":"1.0","type":"link"}